Fréttir

Rjúpnafell í Þórsmörk - næsta ganga 26.9.2026, skráning á ffrang@ffrang.is

Vegna aðstæðna á Fimmvörðuhálsi verður ekki af áður auglýstri Fimmvörðuhálsgöngu FFRANG þann 26. september n.k. Þess er í stað verður boðið upp á haustlitaferð í Þórsmörk þann sama dag. Fyrirkomulag göngunnar verður þannig að farið verður á einkabílum frá N1 á Hvolsvelli kl. 08.00 þann 26. september. Athugið að nauðsynlegt er að vera á jeppum. Ekið verður í Bása í Þórsmörk og þaðan gengið yfir göngubrúna yfir Krossá, fyrst gengið meðfram Krossá og svo upp á topp Rjúpnafells (824 m.y.s.) og svo sömu leið til baka. Lengd göngunnar eru um 7 km. hvor leið, þ.e. 14 km. samtals. Heildarhækkun er um 600 m. Skráning í ferðina er á FFRANG@FFRANG.is Fararstjóri: Helgi Jóhannesson