Dagatal

7. ágúst kl. 18:00-20:00
Mætt við Hvolinn. Hjólað frá Hvolsvelli að Staðarbakka, þaðan niður með Þverá og niður á þjóðveg og aftur á Hvolsvöll. Umsjón: Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir.
10. ágúst kl. 09:00-16:00
Mæting að Rjúpnavöllum kl. 9, þaðan sem gengið er framhjá Tröllkonugili, yfir Ófærugil, að Fossabrekkum, í Rangárbotna, með fram Sauðafelli og Öldu Valafells í Áfangagil. Gangan tekur um 6-7 tíma og er 18,5 km. Heildar hækkun um 550 m. Umsjón: Hugrún Hannesdóttir & Sigríður Theodóra Kristinsdóttir.
11. ágúst kl. 10:00-16:00
Mæting í Áfangagil kl. 10. Gengið þaðan yfir Ölduna og áfram að Valahnjúkum og uppá þá. Þema dagsins er smalamennska í ríki Heklu og að sjálfsögðu endað á sögustund í réttinni í Áfangagili. Gangan tekur um 6 tíma og er um 15 km. Heildar hækkun tæpir 500 m. Umsjón: Hjalti Ófeigsson & Hugrún Hannesdóttir.
17. ágúst kl. 10:00-16:00
Safnast saman á bílastæðinu við Skeiðagatnamót kl. 10 og haldið þaðan upp Skeið að Stöng í Þjórsárdal. Gengin hringleið beggja vegna Rauðár með áningu í Gjánni þar sem upplagt er að sulla í ánni og snæða gott nesti. Lengd göngu með góðum stoppum er 3-4 tímar og um 2 km. Stoppað við Hjálparfoss á bakaleið. Svæðið er sannkallað ævintýraland fyrir börn. Umsjón: Gísli Gíslason & Ágústa Guðmarsdóttir.
31. ágúst kl. 07:00-19:00
Brottför með rútu frá N1 á Hvolsvelli kl. 7. Ekið að Skógum og gengið þaðan yfir Fimmvörðuháls. Rúta tekur hópinn í Básum og fer með hann til baka á N1. Gangan tekur um 10 tíma og er um 24 km. Hámarksfjöldi er 24 manns. Umsjón: Helgi Jóhannesson.
4. september kl. 18:00-20:00
Safnast saman við gamla Keldnabæinn. Umsjón: Gunnar Norðdahl.
14. september kl. 09:00-15:00
Safnast saman hjá Söluskála N1 Hvolsvelli kl. 9. Ekið áleiðis í Þórsmörk, að Stakkholtsgjá. Gengið inn gjána, inn fyrir fossinn og þar upp úr gjánni á hið óþekkta Rjúpnafell. Fáfarin gönguleið og gera þarf ráð fyrir smá klöngri. Gangan tekur um 4 tíma, hækkun um 400 m. Umsjón: Sævar Jónsson & Gunnar B. Norðdahl.
21. september kl. 10:00-14:00
Safnast saman við miðjuna á Hellu kl. 10 og sameinast í bíla. Bolholtsskógur er í umsjón Skógræktarfélags Rangæinga og er um 600 ha að stærð. Lagðar hafa verið gönguleiðir um skóginn við flestra hæfi og genginn verður lengsti hringurinn sem er um 10 km og tekur gangan um 2-3 tíma. Umsjón: Garðar Þorfinnsson.
2. október kl. 18:00-20:00
Safnast saman við íþróttahúsið. Umsjón: Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir.
16. október kl. 18:00-20:00
Veðurspá mun stýra endanlegri dagsetningu og áfangastað. Umsjón: Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir.
6. nóvember kl. 18:00-20:00
Safnast saman við Miðjuna á Hellu. Umsjón Ingibjörg Heiðarsdóttir