Háifoss - Stöng og Gjáin í Þjórárdal

Safnast verður saman á bílastæðinu við Skeiðavegamót kl. 9. Þaðan er ekið um Skeiðaveg að bílastæðinu við Stöng í Þjórsárdal, þar sem skildir verða eftir 2-3 bílar, og síðan haldið áfram um línuveginn að Háafossi og Granna, þar sem aðrir bílar verða skildir eftir. Frá fossunum verður gengið niður Fossárdal að Stöng og síðan stutta hringleið um Gjána. Gangan tekur 4-5 tíma og er um 10 -12 km. Bílar við Stöng verða notaðir til að ferja bílstjóra að stæðinu við Háafoss. Umsjón Gísli Gíslason. 

Endilega að skrá sig í ferðina - það er gott fyrir undirbúning hjá fararstjóra - líka hægt að láta vita þar með bílamál og slíkt! Bara ýta á hnappinn hér fyrir neðan og velja Stöng-Háifoss.