Spennandi ferðir framundan

Úr Dalakofaferð 2022
Úr Dalakofaferð 2022

Hin dugandi ferðanefnd félagsins hefur nú sett saman geysilega spennandi ferðaáætlun fyrir árið 2023 sem finna má hér á síðunni. Hvetjum fólk til að skoða hana og taka þátt því allir eru velkomnir með. Til upprifjunar þá eru það þau Ingibjörg Heiðarsdóttir, Gísli Gíslason, Gustav Þór Stolzenwald, Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir og Guðmundur Árnason sem skipa okkar frábæru ferðanefnd.