Aðalfundur og kynning á ferðaáætlun 2023

Ljóðastund á toppi Þríhyrnings/ÁS
Ljóðastund á toppi Þríhyrnings/ÁS

Aðalfundur Ferðafélags Rangæinga verður haldinn í Hvolnum Hvolsvelli, miðvikudaginn 29. mars n.k. og hefst kl 20:00. Dagskrá er skv. lögum félagsins eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi liðins árs.
  2. Samþykkt ársreiknings félagsins vegna liðins árs.
  3. Lagabreytingar
  4. Stjórnarkjör.
  5. Kosning tveggja skoðunarmanna.
  6. Ákvörðun árgjalds.
  7. Önnur mál.

Á fundinum mun ferðanefnd FFRang kynna ferðaáætlun ársins 2023. Félagsmenn eru hvattir til að mæta.